Óvinsæll Trump er með 36% fylgi.
Óvinsæll Trump er með 36% fylgi.
Donald Trump er óvinsælasti forseti Bandaríkjanna í 70 ár. Aðeins 36% Bandaríkjamanna segjast styðja Trump nú þegar sex mánuðir eru liðnir frá embættistöku forsetans, samkvæmt könnun ABC og Washington Post.

Donald Trump er óvinsælasti forseti Bandaríkjanna í 70 ár.

Aðeins 36% Bandaríkjamanna segjast styðja Trump nú þegar sex mánuðir eru liðnir frá embættistöku forsetans, samkvæmt könnun ABC og Washington Post. Stuðningur við Trump minnkar um sex prósentustig frá því að hundrað dagar voru liðnir frá embættistöku í apríl.

Trump hefur reynt að draga úr mikilvægi skoðanakönnunarinnar og nýtti samfélagsmiðilinn Twitter til að lýsa því yfir að „næstum 40% væri ekki slæmt á þessum tíma“.