Borgarstjóraspjall Vel fór á með borgarstjórunum Degi B. Eggertssyni og Ödu Calou í gærmorgun.
Borgarstjóraspjall Vel fór á með borgarstjórunum Degi B. Eggertssyni og Ödu Calou í gærmorgun.
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Fjölbreyttur hópur íslenskra listamanna kemur fram á borgarhátíðinni La Mercè í Barcelona í lok september en Reykjavík er gestaborg hátíðarinnar í ár. Nöfn listamannanna voru kynnt á sameiginlegum blaðamannafundi Dags B.

Fjölbreyttur hópur íslenskra listamanna kemur fram á borgarhátíðinni La Mercè í Barcelona í lok september en Reykjavík er gestaborg hátíðarinnar í ár.

Nöfn listamannanna voru kynnt á sameiginlegum blaðamannafundi Dags B. Eggertssonar borgarstjóra og Ödu Calou, borgarstjóra Barcelona, í ráðhúsi Barcelona í gærmorgun og var fjöldi blaða- og fréttamanna viðstaddur.

Í tilkynningu vegna þessa segir að í máli Calou hafi komið fram að viðbrögð borgarbúa við því að Reykjavík væri gestaborgin í ár hafi verið mjög sterk og jákvæð og að svo virtist sem íbúar Barcelona þekktu betur til Reykjavíkur en hún hefði áður talið.

Gestir á aðra milljón

Hátíðin La Mercè er skipulögð af menningarskrifstofu Barcelona og verður hún haldin 22.-25. september nk. La Mercè er stærsta árvissa hátíðin sem haldin er í borginni og á rætur að rekja aftur til ársins 1871, að því er fram kemur í tilkynningu.

Menning og listir verða í öndvegi á La Mercè, fjöldi listamanna kemur að dagskránni og borgin mun iða af lífi, tónleikar haldnir víða, dansað og götulist sýnd en umgjörðin er sögufrægir staðir í Barcelona auk þess sem hátíðin teygir anga sín út í hin ýmsu hverfi með þátttöku borgarbúa og gesta, eins og segir í tilkynningu. Þar segir einnig að líklegt sé að á aðra milljón gesta sæki hátíðina heim og Reykjavíkurborg feti í fótspor menningarborga á borð við Stokkhólm, París og London sem hafi allar verið gestaborgir La Mercè-menningarhátíðarinnar.

Tónlist, kvikmyndir og dans

Íslensku listamennirnir voru valdir til þátttöku af skipuleggjendum hátíðarinnar í samráði við Útón, þ.e. Útflutningsmiðstöð íslenskrar tónlistar, og Menningar- og ferðamálasviði Reykjavíkur.

Listamennirnir koma úr ólíkum áttum en þeir eru Samaris, Kiasmos, Glowie, Emmsjé Gauti, Ólöf Arnalds, Grísalappalísa, Reykjavíkurdætur, JFDR, Guðrún Ólafsdóttir, Milkywhale, Halldór Mar, Ingvar Björn, Sigríður Soffía Níelsdóttir dansari og sýningin Full Dome Show.

Einnig verða sýndar fjórar kvikmyndir: heimildarmyndin Ransacked eftir Pétur Einarsson, Hross í oss eftir Benedikt Erlingsson, tónlistarmyndin Bakgarðurinn eftir Árna Sveinsson og Boken eftir Geoffrey Orthwein og Andrew Sullivan sem er leikin kvikmynd og vísindaskáldskapur um bandarískt par sem ferðast til Íslands.

helgisnaer@mbl.is