Kvikmyndaleikstjórinn Baltasar Kormákur hefur fengið til liðs við sig Robert Richardson, einn virtasta kvikmyndatökustjóra Hollywood, við gerð kvikmyndarinnar Adrift en tökur á henni hófust í síðustu viku á Fídjieyjum.

Kvikmyndaleikstjórinn Baltasar Kormákur hefur fengið til liðs við sig Robert Richardson, einn virtasta kvikmyndatökustjóra Hollywood, við gerð kvikmyndarinnar Adrift en tökur á henni hófust í síðustu viku á Fídjieyjum. Richardson hefur hlotið fjölda verðlauna á ferli sínum og þrisvar Óskarsverðlaun, fyrir kvikmyndatöku í JFK eftir leikstjórann Oliver Stone og The Aviator og Hugo eftir Martin Scorsese. Þá hefur hann að auki verið tilnefndur sex sinnum til Óskarsverðlauna, fyrir Hateful Eight, Django Unchained, Inglourious Basterds, Snow Falling on Cedars, Born on the Fourth of July og Platoon.

„Það er mér mikill heiður að fá að vinna með Robert. Hann er einn fremsti tökumaður heimsins í dag. Hann er búinn að vera að stýra kvikmyndatöku í hartnær 30 ár. Slík reynsla er ómetanleg við gerð Adrift, sem gerist nær öll á sjó,“ er haft eftir Baltasar í tilkynningu vegna þessa. Um framleiðslu Adrift sjá STX Entertainment, Baltasar og RVK Studios. Í myndinni er rakin sönn saga af ungri konu og unnusta hennar sem lentu í einu versta óveðri sögunnar á Kyrrahafi, á leið sinni frá Tahítí til Kaliforníu. Með aðalhlutverk fara Shailene Woodley og Sam Clafin.