18. júlí 1644 Mislingar bárust til landsins í fyrsta sinn, með skipi sem kom til Eyrarbakka. Í Skarðsárannál var sagt að sóttin hefði gengið yfir allt landið og verið mjög mannskæð. 18.
18. júlí 1644
Mislingar bárust til landsins í fyrsta sinn, með skipi sem kom til Eyrarbakka. Í Skarðsárannál var sagt að sóttin hefði gengið yfir allt landið og verið mjög mannskæð.
18. júlí 1931
Framkvæmdir hófust við verkamannabústaðina við Hringbraut, Bræðraborgarstíg og Ásvallagötu í Reykjavík. Alls voru íbúðirnar 54 og var flutt inn í flestar þeirra í maí 1932.
18. júlí 1963
Stórbruni varð í verksmiðju Ísaga við Rauðarárstíg í Reykjavík. Miklar sprengingar urðu þegar eldur komst í gashylki. Nálæg hús voru rýmd og rúður sprungu í mörg hundruð metra fjarlægð frá þessu „logandi víti“, eins og blöðin nefndu það.
18. júlí 1970
Þingeyskir bændur fóru í mótmælaferð frá Húsavík til Akureyrar í bílalest. Þeir voru að lýsa andstöðu við fyrirhugaðar virkjunarframkvæmdir í Laxá. Við virkjunina var strengdur borði með áletruninni „Verndum perlu íslenskrar náttúru“. Rúmum mánuði síðar var stífla í ánni sprengd.Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson