Í frétt sem birt var í blaðinu 15. júlí sl. um sýningu Katrínar H. Ágústsdóttur á veitingastaðnum Munaðarnes restaurant stóð að hún yrði opnuð þann dag kl. 14. Hið rétta er að hún verður opnuð 22. júlí, kl. 14.
Í frétt sem birt var í blaðinu 15. júlí sl. um sýningu Katrínar H. Ágústsdóttur á veitingastaðnum Munaðarnes restaurant stóð að hún yrði opnuð þann dag kl. 14. Hið rétta er að hún verður opnuð 22. júlí, kl. 14. Katrín hefur undanfarin ár lagt stund á vatnslita-, olíu- og akrýlmálun og er myndefnið innblásið af náttúru Íslands. Áður lagði hún stund á batíktækni og var viðfangsefnið þá svipmyndir frá gamalli tíð. Katrín hefur haldið fjölda einkasýninga og tekið þátt í samsýningum.