Alls bárust lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu 636 tilkynningar um hegningarlagabrot í júní sl., en það er nokkur fækkun tilkynninga miðað við síðustu þrjá mánuði á undan.
Júnímánuður var almennt betri en maí en tilkynningum fækkaði í flestum brotaflokkum, samkvæmt afbrotatölfræði lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu, sem gefin er út fyrir júnímánuð.
20 prósentum færri ofbeldisbrot
Tilkynnt var um 83 ofbeldisbrot í júní eða hátt í þrjú ofbeldisbrot á dag að meðaltali. Engu að síður er um að ræða fækkun tilkynninga sem nemur um 20 prósentum miðað við meðaltal síðustu sex og síðustu 12 mánaða á undan.Tilkynningum um nytjastuldi hefur einnig fækkað töluvert það sem af er ári, eða um 20 prósent miðað við meðalfjölda síðustu þriggja ára á undan. Fíkniefnabrotum fjölgaði nokkuð í júnímánuði miðað við meðalfjölda síðustu sex og síðustu 12 mánaða á undan sem og akstri undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Það sem af er ári hafa verið skráð um 46 prósentum fleiri fíkniefnaakstrar en að meðaltali síðastliðin þrjú ár á undan.
vilhjalmur@mbl.is