Justin Timberlake stökk til aðstoðar þegar áhorfandi á golfmóti sem hann spilaði á varð fyrir golfkúlu sem einn spilari úr hans hópi sló.

Justin Timberlake stökk til aðstoðar þegar áhorfandi á golfmóti sem hann spilaði á varð fyrir golfkúlu sem einn spilari úr hans hópi sló.

Söngvarinn, sem var að spila golf á góðgerðargolfmótinu American Century Celebrity Golf Championship við Lake Tahoe, stökk til þegar hann sá að konan varð fyrir golfkúlunni en hún virtist ekki hafa meitt sig neitt því hún brosti út í eitt og gaf Justin „high five“.

Justin spilaði þennan góðgerðargolfleik með NFL-stjörnunum Tony Romo og NBA-leikmanninum Stephen Curry.