Stefanía Jónasdóttir
Stefanía Jónasdóttir
Eftir Stefaníu Jónasdóttur: "Heimurinn er ógnvænlegur, en Líf Magneudóttir og vinstrielítan ætla að berjast gegn illskunni með orðum og verði þeim að góðu."

Já, dýrin munu gráta. Ég hef áður skrifað: „Bíðið þar til ferðamenn drepa sér lömb til átu.“ Þeir taka sér egg, fugla, veiða bæði í ám og vötnum á stöng og í net þar sem þeir telja að enginn sjái til. Þeir eru vel meðvitaðir um verðmæti æðardúns og taka hann. Síðan menga þeir land okkar með saur og þvagi, saur sem getur seytlað í drykkjarvatn. Þetta er nú öll virðingin sem landi og þjóð er sýnd. En auðvitað eins og alltaf á þetta ekki við um alla ferðamenn, býst við að einhverjir þeirra séu siðmenntaðir. En þeir eru jú komnir til lands þar sem allt leyfist. Sem dæmi: Þeir sem drápu lambið, því var þeim ekki fylgt að Leifsstöð og sendir úr landi? Ég efast um að hinn langi hnífur hafi verið tekinn af þeim. Af hverju þessi hnífur? Jú til þess að drepa sér bráð – og þeir eru jafnvel nú á öruggum stað við iðju sína þar sem enginn sér til. Og vesalings menntaða fólkið okkar getur ekki fundið út hvernig verja beri land og dýr og taka greiðslu fyrir sýningar á perlunum okkar. Meira að segja er látið eftir múslimum að drepa dýrin okkar með halal-aðferð, en ef þeir geta ekki aðlagast okkar siðum mega þeir bara fara til síns heima.

En það er svo flott á Íslandi, að svokallaður flóttamaður opnar veitingastað í miðbæ Akureyrar eftir rúmt ár á Íslandi. Landið er selt í bútum og það sem þið kallið flóttafólk, því er dælt inn í landið. Nú fengu Kínverjar að kaupa sér jörð, þeir rækta þá kannski upp katta- og hundakjöt handa múltíkúltúrfólkinu. En svona er þetta þegar landi og þjóð er ekki stjórnað. Það gleymist hversu fá við erum. Heimurinn er ógnvænlegur, en Líf Magneudóttir og vinstrielítan ætla að berjast gegn illskunni með orðum og verði þeim að góðu. Það er gott að geta lifað í La la-landi og -heimi. Ég mótmæli því að þurfa að halda uppi fullfrískum albönskum karlmönnum, það er ekkert stríð í Albaníu og Íslendingar flykkjast þangað í sólarferðir. Hvernig má vera að stjórnvöld leyfi sér að fara svona með fé okkar? Þessir karlar fá meira á mánuði en ég sem eldri borgari. Sé albanska mafían komin, sem kæmi mér ekki á óvart, þá fylgir henni vændi, mansal og fólk hverfur, þetta er vitað um alla Evrópu.

Í Norður-Kosovo þurfa Serbar að hafa lögregluvakt við fjölbrautaskólana til verndar unglingsstúlkum. Þar sem Íslendingar ásamt fleiri þjóðum afhentu Albönum Kosovo, þá sjá þeir nú fyrir sér Stór-Albaníu. Já, það eru blikur á lofti eina ferðina enn á Balkanskaga. Það bíða um 2.000 ISIS-liðar í Evrópu eftir skipun um að gera árás. Þeir eru með æfingabúðir um 150 kílómetra norðaustur af Sarajevo í Bosníu. Lif Magneudóttir og vinstrielítan geta tekið sér ferð á hendur þangað og talað þetta lið til.

En að öðru. Fækkið þing- og embættismönnum, sérfræðingum sem bulla og þvæla, og já, hvað eru margir á launum hjá biskupsstofu? Séu þeir 30-40 manns, hvað er þá allt þetta fólk að gera?

Þórunn og Páll Halldórsson: Hættið að syngja sama sönginn áratugum saman um endalausa hækkun launa út af menntun. Ísland er illa statt með ykkur öll. Fjölgið í lögreglunni og við landamæravörslu. Er virkilega enginn stjórnmálamaður svo hugaður að hann taki á þessum bullinnflytjendamálum og verndi land og þjóð? Það munu alltaf verða stríð og á að buga okkur Íslendinga þess vegna? Ég mótmæli og kalla eftir sterkum leiðtoga sem vill vera Íslendingur. Væri nú ekki þjóðráð að hinn menntaði Íslendingur spyrði sig: Hvað get ég gert fyrir land mitt og þjóð, en ekki alltaf verið með kröfur um það hvað land og þjóð eigi að gera fyrir hann?

Hvar er nú karlmennska íslenskra karla, eruð þið allir orðnir femínistar?

Höfundur býr á Sauðárkróki.