Það var á þessum degi árið 1992 sem Bobby Brown og Whitney Houston gengu í það heilaga á heimili söngkonunnar í New Jersey. Whitney klæddist Marc Bouwer-brúðarkjól sem kostaði 40.000 dollara.
Það var á þessum degi árið 1992 sem Bobby Brown og Whitney Houston gengu í það heilaga á heimili söngkonunnar í New Jersey.
Whitney klæddist Marc Bouwer-brúðarkjól sem kostaði 40.000 dollara. Meðal gesta voru Stevie Wonder, Gloria Estefan, Natalie Cole, Patti LaBelle og Freddie Jackson.
Hjónaband Bobbys og Whitney var mikið á milli tannana á fólki og rataði ansi oft í slúðurblöðin vegna ofbeldis og eiturlyfjaneyslu.
Brown og Houston sóttu um skilnað haustið 2006.