Salsa Iceland Tekið er vel á móti byrjendum.
Salsa Iceland Tekið er vel á móti byrjendum.
Salsa Iceland býður byrjendum í ókeypis prufutíma í salsa kl. 19.30-20.30 annað kvöld, miðvikudagskvöldið 19. júlí, í Oddsson í JL-húsinu við Hringbraut. Að kennslustund lokinni dunar dansinn til kl. 23.30.
Salsa Iceland býður byrjendum í ókeypis prufutíma í salsa kl. 19.30-20.30 annað kvöld, miðvikudagskvöldið 19. júlí, í Oddsson í JL-húsinu við Hringbraut. Að kennslustund lokinni dunar dansinn til kl. 23.30. Dansáhugafólk er hvatt til að líta inn og ef ekki dansa þá til að spjalla. Hvorki þarf að taka með sér dansfélaga né hafa nokkra dansreynslu. Í salsasamfélaginu er hefð fyrir því að allir dansi við alla og bjóði upp í dans.