Á sjó Nýjasta plata Hannigan er At Sea.
Á sjó Nýjasta plata Hannigan er At Sea. — Ljósmynd/ Rich Gilligan
Írska tónlistarkonan Lisa Hannigan kemur fram á tónleikum í Gamla bíói á annað kvöld, sunnudag, kl. 21. Hannigan hefur áður komið fram á Íslandi, þar á meðal þrisvar með tónlistarmanninum Damien Rice.
Írska tónlistarkonan Lisa Hannigan kemur fram á tónleikum í Gamla bíói á annað kvöld, sunnudag, kl. 21. Hannigan hefur áður komið fram á Íslandi, þar á meðal þrisvar með tónlistarmanninum Damien Rice. Í fyrra sendi hún, í samstarfi við upptökustjórann Aaron Dessner, frá sér sína þriðju sólóplötu sem nefnist At Sea . Samkvæmt upplýsingum tónleikahaldara hefur platan og rödd Hannigan fengið frábæra dóma.