Þennan dag árið 2006 gengu þau Pamela Anderson og rapparinn Kid Rock í það heilaga á St. Tropez á frönsku rívíerunni. Pamela var að gifta sig í annað sinn en hún var áður gift rokkaranum Tommy Lee en þau skildu árið 1998.
Þennan dag árið 2006 gengu þau Pamela Anderson og rapparinn Kid Rock í það heilaga á St. Tropez á frönsku rívíerunni. Pamela var að gifta sig í annað sinn en hún var áður gift rokkaranum Tommy Lee en þau skildu árið 1998. Strandvarðarstjarnan fyrrverandi var 39 ára þegar hún giftist Kid Rock en þau höfðu verið stuttlega saman árið 2003 en tóku svo aftur saman 2006 og ákváðu að giftast. Hjónabandið entist þó ekki lengi því þau skildu eftir 4 mánuði.