MTV Video Music Awards eru haldinn 27. ágúst næstkomandi.
Einn af áhugarverðustu verðlaunaflokkunum á MTV Video Music Awards þetta árið er flokkurinn „Besta samstarfið“. Tilkynnt var á dögunum hverjir eru tilnefndir í þessum flokki. Vinkonurnar Selena Gomez og Taylor Swift voru tilnefndar sem og Katy Perry en Selena og Swift eru vinkonur en ansi kalt er á milli Taylor Swift og Katy Perry og því er samkeppnin hörð. Selena er tilnefnd fyrir lag sitt með Charlie Puth ‘We Don't Talk Anymore', Swift fyrir lagið ‘I Don't Wanna Live Forever'með Zayn Malik og Katy Perry ásamt Calvin Harris og Pharrell Williams fyrir smellinn ‘Feels' sem er í öðru sæti á Vinsældalista Íslands.