2,25% Léttöl virðist vera í mikilli sókn á íslenskum markaði í dag.
2,25% Léttöl virðist vera í mikilli sókn á íslenskum markaði í dag. — AFP
Magnús Heimir Jónasson mhj@mbl.is „Það hefur verið jöfn og góð aukning.

Magnús Heimir Jónasson

mhj@mbl.is

„Það hefur verið jöfn og góð aukning. Frá árinu 2013 hefur salan aukist um 60% í lítrum hjá okkur fyrstu sex mánuði áranna,“ segir Andri Þór Guðmundsson, forstjóri Ölgerðarinnar, spurður hvort sala á léttöli hafi aukist á Íslandi. Andri segir aukninguna í samræmi við aukna bjórsölu enda fleiri neytendur á markaði með vaxandi straumi ferðamanna hingað. „Þegar ég fór að skoða hvort þetta væri umfram sölu á bjór þá er þetta ekki neitt svakalega mikið. Við erum með 56% aukningu á sölu bjórs á sama tíma,“ segir Andri. Hann segir að aukin sala á léttöli sé blanda af mörgum þáttum. „Þetta er alls konar sambland. Þetta eru ferðamennirnir, fleiri viðskiptavinir hjá okkur og aukin markaðshlutdeild.“

Léttöl almennt í sókn í dag

Áki Sveinsson, markaðsstjóri Coca Cola á Íslandi, áður Vífilfells, segir að sala á léttöli hafi einnig gengið mjög vel. „Ég get sagt að aukningin á fyrstu sex mánuðum ársins hefur verið mjög jákvæð. Léttölið er á uppleið ef bornir eru saman fyrstu sex mánuðir áranna 2015, 2016 og 2017. Ég held að þetta muni halda áfram,“ segir Áki og bætir við að koma Costco hafi einnig áhrif. „Nú er Costco komið á markaðinn og þeir eru bæði byrjaðir að selja Víking-léttöl og Thule-léttöl. Það varð alveg svaka kippur í sölu eftir að þeir opnuðu í Garðabæ,“ segir Áki og bætir við að léttölið virðist almennt í sókn í dag.