Beyki Í Hellisgerði eru fjögur beykitré.
Beyki Í Hellisgerði eru fjögur beykitré.
Skógræktarfélag Íslands, í samstarfi við IKEA á Íslandi, útnefnir beyki (fagus sylvatica), í Hellisgerði í Hafnarfirði sem tré ársins 2017. Af því tilefni verður hátíðleg athöfn kl. 15 í dag, laugardaginn 29. júlí.

Skógræktarfélag Íslands, í samstarfi við IKEA á Íslandi, útnefnir beyki (fagus sylvatica), í Hellisgerði í Hafnarfirði sem tré ársins 2017. Af því tilefni verður hátíðleg athöfn kl. 15 í dag, laugardaginn 29. júlí. Skógræktarfélag Íslands útnefnir árlega tré ársins og er útnefningunni ætlað að beina sjónum almennings að því gróskumikla starfi sem unnið er um land allt í trjá- og skógrækt og benda á menningarlegt gildi einstakra trjáa.

Beyki er algengt skógartré í Evrópu og hefur viður þess verið nýttur á marga vegu, meðal annars til húsa- og húsgagnagerðar og í ýmsan húsbúnað en einnig þykir beyki góður eldiviður. Beyki þarf hlýtt og langt sumar og vex því almennt takmarkað á Íslandi, en er þó lífseigt og getur lifað lengi sem lítið tré eða runni. Í Hellisgerði eru fjögur beykitré, sem gróðursett voru fyrir 90 árum, þá nokkurra ára gömul, en tré ársins 2017 kann að vera hátt í hundrað ára gamalt.

Boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá, m.a. tónlistaratriði. Allir velkomnir.