Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Ólafur Torfason, stjórnarformaður Íslandshótela, segir útlit fyrir færri bókanir í ár en í fyrra. Spár um vöxt milli ára muni að óbreyttu ekki rætast.
Íslandshótel eru stærsta hótelkeðja landsins. Hótelin eru 17, þar af 11 á landsbyggðinni.
„Það hefur hægt á vextinum. Á sama tíma í fyrra höfðum við áhyggjur af því hvernig við ættum að takast á við aukninguna. Það vandamál leystist af sjálfu sér með sterku gengi. Það er verri bókunarstaða en á sama tíma í fyrra, bæði í júlí og ágúst. Við fáum líka minna fyrir söluna í evrum,“ segir Ólafur.
Dýrara að sækja viðskiptavini
Kristófer Oliversson, framkvæmdastjóri og eigandi CenterHotels-keðjunnar, segir greinilegt að farið sé að hægja á örum vexti greinarinnar. Kostnaður við að sækja gesti sé að aukast og dvöl þeirra að styttast.„Við þurfum að hafa miklu meira fyrir því að fylla hótelin. Ég sé þó ekki hrun fram undan. Það er útlit fyrir að okkur takist að halda svipuðum takti í Reykjavík. Mér finnst miklu meiri ástæða til að hafa áhyggjur af landsbyggðinni; Norðurlandi, Vestfjörðum og Austurlandi,“ segir Kristófer um breytta stöðu á markaðnum.
Jafnast á við
50 hótel
» Varlega áætlað hafa alls milli fimm og sex þúsund hótelherbergi verið
í pípunum í Reykjavík,
Kópavogi og Hafnarfirði.
» Það er á við 50 dæmigerð hótel í borginni.