Smáhýsin sem Sandgerðisbær hefur ákveðið að kaupa koma í tilbúnum einingum frá fyrirtækinu Hafnarbakka. Þau verða sett upp á næstu vikum og því næst hafist handa við að tengja vatns-, hita- og rafmagnslagnir.
Smáhýsin sem Sandgerðisbær hefur ákveðið að kaupa koma í tilbúnum einingum frá fyrirtækinu Hafnarbakka. Þau verða sett upp á næstu vikum og því næst hafist handa við að tengja vatns-, hita- og rafmagnslagnir. Vonast er til að þau verði tilbúin til notkunar eftir um tvo mánuði. Tvö húsanna eru 24 fermetrar en hin tvö 48 og er þeim ætlað að hýsa einstæðinga og litlar fjölskyldur. Heildarkostnaður við kaup og uppsetningu húsanna fjögurra er áætlaður um 30 milljónir króna.