Óhapp Enginn slasaðist alvarlega.
Óhapp Enginn slasaðist alvarlega.
Ökumaður bifreiðar lenti í talsverðum vandræðum á ferð sinni um Dalina um miðjan dag í gær, en mikið hvassviðri var á svæðinu.

Ökumaður bifreiðar lenti í talsverðum vandræðum á ferð sinni um Dalina um miðjan dag í gær, en mikið hvassviðri var á svæðinu. Þegar komið var á vegkaflann á milli Klofningsvegar og Búðardals missti hann stjórn á bifreiðinni með þeim afleiðingum að hjólhýsi, sem bíll hans hafði í eftirdragi, hafnaði utanvegar. Ekki er talið að neinn hafi slasast í óhappinu, en einhverjar skemmdir hlutust hins vegar af.

Víða var hvasst á Vesturlandi í gær og sá Vegagerðin ástæðu til að vara vegfarendur sérstaklega við Kára á heimasíðu sinni.