Mitt er þitt er yfirskrift næstu tónleika í tónleikaröðinni Englar og menn í Strandarkirkju, sem fram fara á morgun, sunnudag, kl. 14.
Mitt er þitt er yfirskrift næstu tónleika í tónleikaröðinni Englar og menn í Strandarkirkju, sem fram fara á morgun, sunnudag, kl. 14. Þar kemur fram dúettinn Duo Atlantica en hann skipa mezzósópransöngkonan Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir og spænski gítarleikarinn og tónskáldið Francisco Javier Jáuregui. Á efnisskránni eru þjóðlög frá Íslandi, Spáni og Bretlandseyjum.