AKURINN | Samkoma í Núpalind 1, kl. 14. Biblíufræðsla, söngur og bæn.
ÁRBÆJARKIRKJA | Guðsþjónusta kl.11. Skólahljómsveit Árbæjar og Breiðholts leikur undir stjórn Snorra Heimissonar. Kór Árbæjarkirkju syngur. Organisti er Krisztina Kalló. Sr. Petrína Mjöll þjónar fyrir altari og predikar. Sunnudagaskólinn er á sama tíma í safnaðarheimilinu.
ÁSKIRKJA | Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11 í umsjá séra Sigurðar Jónssonar og Kristnýjar Rósar Gústafsdóttur djákna. Þorvaldur Örn Davíðsson leikur á orgel og píanó. Brúður og sögur, bænir og leikir. Hressing í Ási að guðsþjónustu lokinni.
ÁSTJARNARKIRKJA | Bleik messa kl. 11. Kór Ástjarnarkirkju syngur undir stjórn Keiths Reed. Prestur er Kjartan Jónsson og meðhjálpari Sigurður Þórisson. Sunnudagaskóli á sama tíma undir stjórn Hólmfríðar S. Jónsdóttur. Hressing og samfélag á eftir.
BESSASTAÐAKIRKJA | Messa kl 14. Ræðumaður er Jón Atli Benediktsson háskólarektor. Sérstakur gestakór frá Noregi, Biri Snertingdal Kantori, syngur ásamt Álftaneskórnum undir stjórn Bjarts Loga organista. Við messuna þjóna Margrét djákni, sr. Haraldur Örn og sr. Hans Guðberg. Að messu lokinni verður vöfflukaffi í safnaðarheimilinu Brekkuskógum 1. Kl 11. er sunnudagskóli í Brekkuskógum 1. Umsjón hafa Elín Hrund og Ásgeir Páll.
BORGARNESKIRKJA | Messa kl. 11. Guðsþjónusta í Brákarhlíð kl. 13.45. Organisti Steinunn Árnadóttir. Prestur Þorbjörn Hlynur Árnason
BREIÐHOLTSKIRKJA | Kl. 11 messa og prédikun frá Ísrael. Sr. Þórhallur Heimisson þjónar. Kór Breiðholtskirkju syngur, organisti er Örn Magnússon. Sunnudagaskóli á sama tíma í umsjá Steinunnar Leifsdóttur og Steinunnar Þorbergsdóttur. Kaffi í safnaðarheimili á eftir. Ensk messa kl. 14. Sr. Toshiki Toma þjónar. Organisti er Örn Magnússon.
BÚSTAÐAKIRKJA | Barnamessa kl. 11. Gefandi stund fyrir alla fjölskylduna. Hreiðar Örn, Ragnar Bjarni, Jónas Þórir og Pálmi leiða stundina. Söngur, fræðsla og leikur. Djassmessa kl. 14 með þátttöku Súgfirðinga. Sigurður Flosason saxófónleikari og Gunnar Kv. Hrafnsson kontrabassaleikari leiða messuna ásamt Kammerkór Bústaðakirkju, messuþjónum, kantor Jónasi Þóri og sr. Pálma.
DIGRANESKIRKJA | Messa kl 11.00 í tengslum við ráðstefnuna, Tímabil sköpunarverksins. Prestur sr. Gunnar Sigurjónsson og erlendur predikari. Organisti Sólveig Sigríður Einarsdóttir. Kammerkór Digraneskirkju. Sunnudagaskóli á sama tíma. Veitingar í safnaðarsal eftir messu.
Dómkirkja Krists konungs, Landakoti | Messa á sunnud. kl. 8.30 á pólsku, kl. 10.30 á íslensku, kl. 13 á pólsku og kl. 18 á ensku. Messa virka daga kl. 18, og má. mi. og fö. kl. 8, lau. kl. 16 á spænsku og kl. 18 er sunnudagsmessa.
DÓMKIRKJAN | Messa kl. 11. Sr. Einar Tjelle prédikar á ensku í tilefni af ráðstefnu Alkirkjuráðsins um réttlátan frið við jörðina. Sr. Sveinn Valgeirsson flytur útdrátt úr ræðunni og þjónar fyrir altari. Kári Þormar leikur á orgelið og félagar úr Dómkórnum leiða sönginn. Sunnudagaskólinn verður samtímis á kirkjuloftinu. Æðruleysismessa kl. 20.
FELLA- og Hólakirkja | Bleik messa og sunnudagaskóli kl. 11. Kristín Kristjánsdóttir djákni og Hólmfríður Ólafsdóttir djákni þjóna og predika. Sóknarnefndarkonur lesa ritningalestra. Konur í kirkjukórnum syngja undir stjórn Arnhildar Valgarðsdóttur. Sunnudagaskólinn á sama tíma í umsjá Péturs, Ástu og sr. Jóns Ómars, allir sem vilja mæta í einhverju bleiku. Meðhjálpari Kristín Ingólfsdóttir Kaffisopi og djús eftir stundina.
GLERÁRKIRKJA | Messa og sunnudagaskóli. Sameiginlegt upphaf í messu. Sr. Gunnlaugur Garðarsson þjónar. Kór Glerárkirkju syngur. Organisti Petra Pálsdóttir.
GRAFARVOGSKIRKJA | Fjölnismessa kl. 11. Séra Arna Ýrr Sigurðardóttir þjónar. Jón Karl Ólafsson flytur ávarp. Iðkendur íþróttafélagsins Fjölnis taka þátt í messunni. Kór og barnakór Grafarvogskirkju syngja undir stjórn Hilmars Arnar Agnarssonar og Sigríðar Soffíu Hafliðadóttur. Kaffi, djús og kleinur að lokinni messu. Sunnudagaskóli á neðri hæð kirkjunnar kl. 11. Umsjón hafa Þóra Björg Sigurðardóttir og Hólmfríður Frostadóttir. Undirleikari er Stefán Birkisson.
GRAFARVOGUR - KIRKJUSELIÐ Í SPÖNG | Selmessa kl. 13. Séra Guðrún Karls Helgudóttir prédikar og þjónar. Vox Populi leiðir söng undir stjórn Hilmars Arnar Agnarssonar organista. Einsöngvari er Guðrún Árný Karlsdóttir. Vox Populi býður upp á kaffiveitingar eftir messuna.
GRENSÁSKIRKJA | Messa og barnastarf kl. 11. Séra Karen Kuhnert, baráttukona fyrir réttindum frumbyggja í Kanada, prédikar. Sr. María Ágústsdóttir þjónar ásamt messuþjónum. Um tónlistina sjá Ásta Haraldsdóttir og félagar úr kór Grensáskirkju. Umsjón með barnastarfi hefur Daníel Ágúst Gautason. Samskot renna til Hjálparstarfs kirkjunnar. Kaffisopi eftir messu. Kyrrðarbæn og hversdagsmessa á fimmtudag kl. 17.15 og 18.
GUÐRÍÐARKIRKJA í Grafarholti | Guðsþjónusta og barnastarf kl. 11. Prestur Leifur Ragnar Jónsson, organisti Hrönn Helgadóttir og kvennakór Guðríðarkirkju. Barnastarf í umsjá Sigurðar Óskars og Hákons Darra. Kirkjuvörður Lovísa Guðmundsdóttir og meðhjálpari Guðný Aradóttir. Kaffi og djús í boði eftir messu. Hvetjum fermingarbörn og foreldra þeirra til að mæta.
HAFNARFJARÐARKIRKJA | Útimessa við minnisvarðann á Óseyrarbryggju kl 11 þar sem þess verður minnst að fyrsta messan á Íslandi í lúterskum sið var flutt þar á þýsku. Vígslubiskup, Kristján Valur Ingólfsson, predikar og þjónar ásamt prestum kirkjunnar. Sungnir verða sálmar Lúters. Kaffiveitingar í Kænunni á eftir. Sunnudagaskólinn verður í kirkjunni kl 11. Guðsþjónusta á Sólvangi kl 15.
HALLGRÍMSKIRKJA | Messa kl.9:30 á vegum Rétttrúnaðarkirkjunnar. Messan er öllum opin. Prédikun flutt á ensku. Samkirkjuleg guðsþjónusta kl. 11 á vegum Samstarfsnefndar kristinna trúfélaga á Íslandi. Peter Loy Chong, erkibiskup kaþólskra á Fiji-eyjum, prédikar. Agnes M. Sigurðardóttir biskup Íslands flytur blessun. Patríarkinn Barthólómeus I mælir lokaorð. Prestar Hallgrímskirkju þjóna. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju syngja. Organisti er Hörður Áskelsson. Barnastarf kl. 11 í umsjá Ingu Harðardóttur
HÁTEIGSKIRKJA | Messa og barnastarf kl. 11. Prestur Eirikur Jóhannsson Organisti Steinar Logi Helgason Kór Háteigskirkju syngur. Barnastarf í umsjá Hilmars Kristinssonar. Í messunni prédikar dr. Pauliina Kainulainen prestur frá Finnlandi. Prédikunin verður þýdd á íslensku.
HJÁLPRÆÐISHERINN Reykjavík | Samkomur eru á sunnudögum kl. 14, bænarstund kl. 13 fyrir samkomu. Bænarstundir fimmtudaga kl. 19.
Alfa-námskeið á sunnudögum kl. 11.
HREPPHÓLAKIRKJA | Kvöldmessa kl. 20:30. Karitas Harpa Davíðsdóttir syngur ásamt kirkjukórnum. Undirleikari er Stefán Þorleifsson.
HVALSNESSÓKN | Messa í Safnaðarheimilinu í Sandgerði kl. 20. Fermingarbörn sérstaklega boðuð ásamt foreldrum.
HVERAGERÐISKIRKJA | Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11. Sóknarprestur messar. Kirkjukór Hveragerðis- og Kotstrandarsókna leiðir söng undir stjórn Miklósar Dalmay.
ÍSLENSKA Kristskirkjan | Barnakirkja Kl. 13. Fjölbreytt starf fyrir alla aldurshópa og almenn samkoma með lofgjörð. Heimsókn Ray og Fran Duerksen, prestshjóna frá kirkjunni Church Renewal í Steinbach, Kanada. Samkoma kl. 20. Ray Duerksen talar.
KEFLAVÍKURKIRKJA | Messa kl.11. Kór Keflavíkurkirkju syngur Eide sálma undir stjórn Arnórs organista. Ólöf Sveinsdóttir og Kristinn Þór Jakobsson eru messuþjónar. Sr. Fritz Már Jörgenson þjónar. Sunnudagskóli er á sama tíma í umsjón Systu, Helgu og Jóhönnu Maríu. Súpuþjónar og fermingarforeldrar bjóða uppá súpu og brauð.
Miðvikudagurinn 18.október kl.12. Kyrrðarstund í kapellu vonarinnar í umsjón presta og Arnórs organista. Súpa og brauð borin fram.
KOTSTRANDARKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 14. Jón Ragnarsson sóknarprestur messar. Kirkjukór Hveragerðis- og Kotstrandarsókna leiðir söng undir stjórn Mikósar Dalmay.
KÓPAVOGSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Sigurður Arnarson, sóknarprestur prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Mátéová kantors kirkjunnar. Sunnudagaskólinn verður í safnaðarheimilinu Borgum kl. 11 undir stjórn þeirra Grímu Ólafsdóttur og Birkis Bjarnasonar.
KVENNAKIRKJAN | Bænadjassmessa klukkan 20. Séra Auður Eir Vilhjálmsdóttir prédikar. Anna Sigríður Helgadóttir syngur djasslög við undirleik Aðalheiðar Þorsteinsdóttur. Í bænastund verða lesnar bænir úr bænakörfu sem konur skrifa. Einnig verður kyrrðarbænastund. Á eftir verður kaffi í safnaðarheimilinu.
LANGHOLTSKIRKJA | Messa og sunnudagaskóli kl 11. Magnús Ragnarsson organisti og Guðbjörg Jóhannesdóttir sóknarprestur þjóna. Kvennakórinn Katla syngur við athöfnina. Stjórnendur eru Hildigunnur Einarsdóttir og Lilja Dögg Gunnarsdóttir. Molasopi eftir messu.
LAUGARNESKIRKJA | Messa kl 11. Kór Laugarneskirkju og Elísabet Þórðardóttir organisti. Gerður Bolladóttir syngur einsöng, Sr. Davíð Þór Jónsson þjónar fyrir altari. Sunnudagaskóli í safnaðarheimilinu á meðan. Kaffi og samvera á eftir.
Fimmtudagur 19.10. Kyrrðarstund kl. 12. Tónlist, hugvekja, altarisganga og fyrirbænir. Súpa og samvera á eftir. Helgistund Félagsmiðstöðinni Dalbraut 18-20 kl. 14, með Sr. Davíð Þór og Elísabetu. Helgistund Hásalurinn Hátúni 10 kl. 16, með Sr. Davíð Þór og Hjalta Jóni.
LÁGAFELLSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Kristín Pálsdóttir þjónar fyrir altari og prédikar. Kirkjukór Lágafellssóknar. Organisti er Þórður Sigurðarson.
LINDAKIRKJA í Kópavogi | Sunnudagaskóli kl. 11. Messa kl. 20. Óskar Einarsson stjórnar kór Lindakirkju. Sr. Vigfús Ingvar Ingvarsson þjónar.
NESKIRKJA | Ömmu og afa messa kl. 11. Yngri og eldri barnakórar Neskirkju syngja ásamt Hljómi, kór eldri borgara í Neskirkju. Stjórnendur eru Jóhanna Halldórsdóttir og Hildigunnur Einarsdóttir. Sögustund og hugleiðing. Umsjón Margrét Heba Atladóttir og sr. Ása Laufey Sæmundsdóttir, sem þjónar fyrir altari. Ari Agnarsson situr við hljóðfærið. Ávextir og kruðirí, kaffi og gott á kirkjutorgi eftir guðsþjónustuna.
SALT kristið samfélag | Sameiginlegar samkomur Salts. og SÍK. kl: 17 í Kristniboðssalnum Háaleitisbraut 58-60. 3.hæð. Glænýtt Alfa-námskeið. Túlkað á ensku/íslensku. Barnastarf.
SELFOSSKIRKJA | Messa kl. 11. Prestur Guðbjörg Arnardóttir, Kirkjukórinn syngur, organisti Glúmur Gylfason. Sunnudagskóli á sama tíma í umsjón Jóhönnu Ýrar Jóhannsdóttur og leiðtoga.
Súpa og brauð gegn vægu gjaldi í safnaðarheimilinu á eftir.
SELJAKIRKJA | Barnaguðsþjónusta kl. 11, Biblíusaga, söngur og gleði, ávaxtahressing í lokin og nýr límmiði. Guðsþjónusta kl. 14. Kristján Arason guðfræðingur prédikar og sr. Bryndís Malla Elídóttir þjónar fyrir altari. Félagar úr Rangæingafélaginu lesa ritningarlestra. Kór Seljakirkju leiðir söng og organisti er Tómas Guðni Eggertsson. Kirkjukaffi að messu lokinni í boði Rangæingafélagsins í Reykjavík.
SELTJARNARNESKIRKJA | Guðsþjónusta og sunnudagaskóli kl. 11. Sr. Keld Balmer Hansen, prófastur á Fjóni í Danmörku, prédikar. Ræða hans verður þýdd á íslensku. Sóknarprestur þjónar fyrir altari. Organisti kirkjunnar leikur. Leiðtogar sjá um sunnudagaskólann. Félagar úr Kammerkór Seltjarnarneskirkju leiða almennan safnaðarsöng. Kaffiveitingar og samfélag eftir athöfn.
SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA | Messa kl. 11. Egill Hallgrímsson, sóknarprestur, annast prestsþjónustuna. Organisti er Jón Bjarnason.
ÚTSKÁLAKIRKJA | Messa í Útskálakirkju kl. 17. Fermingarbörn sérstaklega boðuð ásamt foreldrum.
VÍDALÍNSKIRKJA | Sunnudagaskóli og bleik messa kl. 11. Sr. Friðrik J. Hjartar prédikar og þjónar með bleikum messuþjónum og kór sem syngur lög eftir íslenska höfunda. Organisti er Jóhann Baldvinsson. Kaffi, djús og bleikt meðlæti að lokinni athöfn.
VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði | Fjölskylduhátíð kl. 11.Barnakór Víðistaðakirkju syngur undir stjórn Helgu Þórdísar. Umsjón María og Bryndís. Hressing í safnaðarsal á eftir.
YTRI-Njarðvíkurkirkja | Messa með bleiku ívafi kl. 20. Sr. Brynja Vigdís þjónar, hugvekju flytur Katrín Júlía Júlíusdóttir. Organisti er Erla Rut Káradóttir. Bylgja Dís Gunnarsdóttir syngur, einnig nemendur frá Söngskóla Emilíu. Kaffisopi og konfekt eftir stundina.
ÞORLÁKSKIRKJA | Sunnudagaskóli kl. 11 í umsjá Hafdísar og Guðmundar.
Ørkin | Samkoma verður sunnudaginn 15 október kl. 17. Gestur okkar verður Árni Helmsdal frá Færeyjum. Kaffi og meðlæti verður eftir á.
(Mark. 11)
(Mark. 11)