Dómkirkjan Nýr prestur hefur verið ráðinn þar til starfa.
Dómkirkjan Nýr prestur hefur verið ráðinn þar til starfa.
Vilhjálmur A. Kjartansson vilhjalmur@mbl.is Í fyrstu atkvæðagreiðslu kjörnefndar Dómkirkjunnar í Reykjavík hlaut Elínborg Sturludóttir fimm atkvæði til prestsembættis við kirkjuna, Eva Björg Valdimarsdóttir fjögur og Vigfús Bjarni Albertsson eitt.

Vilhjálmur A. Kjartansson

vilhjalmur@mbl.is

Í fyrstu atkvæðagreiðslu kjörnefndar Dómkirkjunnar í Reykjavík hlaut Elínborg Sturludóttir fimm atkvæði til prestsembættis við kirkjuna, Eva Björg Valdimarsdóttir fjögur og Vigfús Bjarni Albertsson eitt.

Marinó Þorsteinsson, formaður sóknarnefndar Dómkirkjunnar, segir að hljóti enginn meirihluta atkvæða í kosningu kjörnefndar sé kosið aftur á milli þeirra tveggja er hljóta flest atkvæði og falli atkvæði jöfn sé varpað hlutkesti, samkvæmt 8. gr. starfsreglna kirkjunnar um val og veitingu prestsembætta nr. 144/2016.

Þær Eva og Elínborg fengu fimm atkvæði hvor í síðari kosningunni en Eva varð hlutskarpari í hlutkesti og hefur verið ráðin í embætti prests við Dómkirkjuna. Undirritaði biskup Íslands skipunarbréfið í gær.

Marinó staðfestir að aðeins tíu af ellefu kjörnefndarmönnum hafi mætt á fund nefndarinnar en samkvæmt fyrrnefndum reglum skal nefndin skipuð ellefu fulltrúum að lágmarki og jafnmörgum til vara.

„Nokkrir aðalmenn sáu sér ekki fært að mæta og ekki náðist að kalla inn varamenn í öll sæti,“ segir Marinó, og útilokaði ekki að eftirmál gætu orðið vegna mætingarinnar.

Áður en hægt er að auglýsa lausa stöðu prests þarf sóknarnefnd á hverjum stað að vinna svokallaða þarfagreiningu að sögn Marinós og í kjölfarið auglýsir biskup lausa stöðu.

„Þegar umsóknir liggja fyrir eru þær sendar biskupi, sem felur miðlægri matsnefnd á Biskupsstofu að fara yfir og velja fjóra til fimm hæfustu umsækjendur úr hópnum. Þær umsóknir eru svo sendar kjörnefnd, en hún er valin af sóknarnefnd. Kjörnefnd kýs svo í leynilegri kosningu um það hver skuli hljóta auglýst embætti,“ segir Marinó en hann telur ferlið óþarflega flókið.

Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins var séra Vigfús Bjarni Albertsson efstur í hæfnismati matsnefndarinnar.