„Þetta er auðvitað langt undir þeim væntingum sem við höfum fyrir þessar kosningar,“ segir Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins, um niðurstöður könnunarinnar.
„Þetta er auðvitað langt undir þeim væntingum sem við höfum fyrir þessar kosningar,“ segir Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins, um niðurstöður könnunarinnar. „Við gerum okkur grein fyrir því að það er mikil vinna að sækja fram við þær aðstæður sem uppi eru núna, þegar hluti flokksmanna er genginn úr flokknum. Ég vænti þess að hagur okkar muni vænkast þegar talið verður upp úr kössunum.“