Halldór Jóhann Sigfússon
Halldór Jóhann Sigfússon
FH, silfurliðið frá síðasta Íslandsmóti karla í handknattleik, á fyrir höndum spennandi verkefni í dag. FH-ingar fóru í austurveg og leika í dag á söguslóðum í St. Pétursborg. Um er að ræða síðari leik liðsins í 2.

FH, silfurliðið frá síðasta Íslandsmóti karla í handknattleik, á fyrir höndum spennandi verkefni í dag. FH-ingar fóru í austurveg og leika í dag á söguslóðum í St. Pétursborg. Um er að ræða síðari leik liðsins í 2. umferð EHF-keppninnar gegn rússneska liðinu St. Pétursborg.

FH vann góðan sigur í fyrri leik liðanna í Kaplakrika 32:27. Þekkt er að töluverður sveiflur vilja verða á milli heima- og útileikja í Evrópukeppnunum og spennandi að sjá hvort fimm marka forskot verði nóg fyrir FH. Einar Rafn Eiðsson og Ágúst Birgisson voru markahæstir hjá FH með átta mörk hvor.

Útileikurinn verður erfiðari en við höfum safnað okkur reynslu í Rússlandi,“ sagði Halldór Jóhann Sigfússon, þjálfari FH, m.a. við Morgunblaðið eftir fyrri leik liðanna. kris@mbl.is