Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
„Það á að vera keppikefli okkar að menntun og skólakerfi sé nemendum og foreldrum að kostnaðarlausu frá upphafi leikskóla til loka framhaldsskóla,“ sagði Þórður Hjaltested, formaður Kennarasambands Íslands, á opnum fundi Kennarasambandsins og Menntavísindasviðs Háskóla Íslands með frambjóðendum stjórnmálaflokkanna. Þórður talaði um nauðsyn þess að auka nýliðun kennara með skilgreindum aðgerðum í samstarfi við menntamálaráðuneytið, sveitarfélögin, Kennarasambandið og háskóla sem mennta kennara en í því samhengi yrði að horfa á laun kennara.
„Í þessu sambandi er ekki hægt að horfa framhjá því að gera þarf laun kennara samkeppnishæf við laun annarra háskólamenntaðra sérfræðinga og stórbæta þar starfsaðstæður kennara og skólastjórnenda til að þróa menntun og skólastarf til hagsbóta fyrir nemendur og samfélagið. Góð og gegn menntun fyrir alla Íslendinga er fjöregg þjóðarinnar,“ sagði Þórður.
Fjármögnun loforða ekki rædd
Aðalbjörn Sigurðsson, útgáfu- og kynningarstjóri Kennarasambandsins, var fundarstjóri. Í upphafi fundarins bað hann frambjóðendur um að halda sig við skólamál. Hann sagðist treysta því að ef frambjóðandi lofaði einhverju á fundinum væri búið að tryggja fjármagnið. „Við ætlum ekki að eyða mestum tíma í að ræða skattahækkanir,“ sagði Aðalbjörn við upphaf fundarins og hlaut lófaklapp fyrir. Frambjóðendur fengu þrjár mínútur hver til að kynna stefnumál sín í menntamálum. Það var samhljómur meðal allra frambjóðenda um að það þyrfti að auka fjármagn í menntakerfið. Mikið var rætt um styttingu framhaldsskólanna og langvarandi starfsmannavanda leikskólanna.