— Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Kunnugleg andlit hafa sést á ferðinni á Siglufirði undanfarna daga en tökur standa nú yfir á annarri þáttaröð sjónvarpsþáttarins Ófærðar. Alls starfa um 100 manns við tökurnar á Siglufirði. Ilmur Kristjánsdóttir, Ingvar E.
Kunnugleg andlit hafa sést á ferðinni á Siglufirði undanfarna daga en tökur standa nú yfir á annarri þáttaröð sjónvarpsþáttarins Ófærðar. Alls starfa um 100 manns við tökurnar á Siglufirði. Ilmur Kristjánsdóttir, Ingvar E. Sigurðsson og Ólafur Darri Ólafsson snúa öll aftur í hlutverkum lögregluþjónanna Hinriku, Ásgeirs og Andra. Þættirnir verða frumsýndir í Ríkissjónvarpinu að ári.