Akta sjóðir Davíð Stefánsson gekk nýverið til liðs við Akta sjóði, rekstrarfélag verðbréfasjóða sem er rekið í samstarfi við Kviku banka.
Akta sjóðir Davíð Stefánsson gekk nýverið til liðs við Akta sjóði, rekstrarfélag verðbréfasjóða sem er rekið í samstarfi við Kviku banka. Hann starfaði áður hjá PJT Partners í London, en fyrirtækið sérhæfir sig í fyrirtækjaráðgjöf og ráðgjöf í fjárhagslegri endurskipulagningu. Þar áður starfaði Davíð í fyrirtækjaráðgjöf Straums fjárfestingarbanka og í fyrirtækjaráðgjöf og greiningardeild Arion banka.

Davíð hefur lokið B.Sc.-námi í hagfræði frá Háskóla Íslands og M.Sc. í alþjóðafjármálum frá HEC Paris.