Listahátíð í Reykjavík er aftur orðin tvíæringur, eftir að hafa verið haldin árlega um nokkurra ára skeið, og í gær kynnti listræni stjórnandinn Vigdís Jakobsdóttir sex viðamestu viðburðina á hátíðinni sem verður haldin dagana 1. til 17. júní næsta sumar.
Þema Listahátíðar verður „Heima“ og sagði Vigdís það vera nálgast á víðan hátt – í samfélagslegum, pólitískum, heimspekilegum og listrænum skilningi – „og einnig sögulega og það tengist fallega hundrað ára fullveldisafmælinu á næsta ári,“ sagði hún. Verkefni hátíðarinnar kallast flest á við þetta þema.
„Fyrsta verkefni Listahátíðar er 1. júní, flutningur Sinfóníuhljómsveitar Íslands á Upprisusinfóníu Mahlers, þeirri númer 2. Þar verður hljómsveitin sérstaklega fjölmenn og einnig Mótettukór Hallgrímskirkju sem tekur þátt í flutnignum. Einsöngvarar verða Christiane Karg og Sasha Cooke og Osmo Vänskä stjórnar,“ sagði Vigdís.
„Við erum í samstarfi við Íslenska dansflokkinn um barnadanssýningu um vinina Óð og Flexu. Áður hefur verið gerð sýningin Óður og Flexa halda afmæli en nú mæta þau hinu ókunna í dansverki fyrir alla fjölskylduna sem verður sýnt í Borgarleikhúsinu.
Í Listasafni Reykjavíkur verður sett upp stór samsýning, Þar ríkir fegurðin ein . Viðfangsefnið er íslenskir listamenn sem mótað hafa íslenska listasögu, eldri verk verða á Kjarvalsstöðum en nýrri verk í Hafnarhúsi.“
Í því samhengi nefndi Vigdís að Klúbbur listahátíðar, sem oft var rekinn með blómlegum hætti á fyrri hátíðum, verður endurvakinn og nú í fjölnotarými Hafnarhússins. Listamaður verður fenginn til að hanna þar inn bar og auk veitinga verður boðið upp á ýmsa viðburði tengda dagskrárliðum hátíðarinnar. Klúbburinn verður opinn til miðnættis öll kvöld og einnig sýningarnar í safninu.
„Þá fáum við Hollywood-leikarann Bill Murray til landsins ásamt þremur vinum og verða þau með tvö skemmtikvöld í Eldborg,“ sagði Vigdís. „Murray er mikið ólíkindatól og þegar hann eignaðist nýjan vin í flugél, þýska sellóleikarann Jan Volker, þá datt þeim í hug að gera eitthvað saman. Murray er að uppgötva klassíska tónlist og á sviðinu ásamt honum eru þau Volker, Mira Wang sem er frábær fiðluleikari og píanóleikarinn Vanessa Perez. Murray les dásamlega bandaríska bókmenntatexta og tekur mögulega lagið.“
Ólík öllu sem sést hefur hér
Íslenska óperan setur upp fyrstu óperu Daníels Bjarnasonar, Bræður , í samstarfi við Sinfóníuhljómsveit Íslands og Den Jyske Opera sem frumflutti verkið í Danmörku við einróma lof gagnrýnenda en óperan er byggð á kvikmyndinni Brothers eftir Susanne Bier. Ein sýning fer nú í sölu, 9. júlí, og mögulega verður önnur sýning.Loks nefndi Vigdís umfangsmesta verkefni Listahátíðar að þessu sinni, sýningu Roberts Wilson, eins kunnasta og dáðasta leikstjóra samtímans, á Eddu í uppsetningu Det Norske Teatret og lofaði að hún væri ólík öllu öðru sem sést hefur á íslensku leiksviði. Tónlistarstjóri sýningarinar er Valgeir Sigurðsson en tónlistin eftir Arvo Pärt og Coco Rosie.
„Í verkinu eru norrænu guðirnir okkar í aðalhlutverki en sýningin er mikið sjónarspil og skarar öll mörk, líka hönnun og myndlist. Oft hefur verið reynt að fá sýningar eftir Wilson til landisns en það hefur ekki tekist til þessa, þær eru svo umfangsmiklar,“ sagði Vigdís. 50 manns koma til landsins að setja sýninguna upp á sviði Borgarleikhússins og verða sýningar 16. og 17. júní.
Edda
Wilson var sýnd á listahátíðinni í Árósum í liðinni viku og fékk frábæra dóma gagnrýnenda.
efi@mbl.is