Gildi lífeyrissjóður Birgir Stefánsson hefur tekið til starfa í eignastýringu Gildis lífeyrissjóðs. Hann kemur til liðs við Gildi frá Íslandsbanka þar sem hann gegndi starfi forstöðumanns fyrirtækja- og fagfjárfestaþjónustu VÍB.
Gildi lífeyrissjóður Birgir Stefánsson hefur tekið til starfa í eignastýringu Gildis lífeyrissjóðs. Hann kemur til liðs við Gildi frá Íslandsbanka þar sem hann gegndi starfi forstöðumanns fyrirtækja- og fagfjárfestaþjónustu VÍB. Áður var Birgir verkefnistjóri uppbyggingar á þjónustu framtakssjóða hjá svissneska einkabankanum EFG í London um tveggja ára skeið og þar áður starfaði hann í átta ár við eignastýringu hjá Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins.