Á flakk Hljómsveitin Agent Fresco mun halda í tónleikaferð um Evrópu á næstu dögum.
Á flakk Hljómsveitin Agent Fresco mun halda í tónleikaferð um Evrópu á næstu dögum.
„Ég er stressaður en spenntur,“ segir Arnór Dan, söngvari Agent Fresco, en sveitin heldur í næstu viku utan til þess að halda tónleika vítt og breitt um Evrópu. Hljómsveitin, sem hefur skipað sér í raðir þeirra allra vinsælustu hér á landi, fagnar tíu ára afmæli á næsta ári.

Sigurður Þorri Gunnarsson

siggi@mbl.is

Það er merkilegt til þess að hugsa að það er tæpur áratugur síðan Agent Fresco spratt fram á sjónarsviðið í Músíktilraunum 2008. Hljómsveitin er heldur betur enn í fullu fjöri og munu þeir halda upp á tíu ára afmælið í febrúar á næsta ári. Það var ekki alveg beint planað hjá Arnóri Dan að verða forsöngvari í hljómsveit þegar kallið kom á sínum tíma. Ég bjó í Danmörku og var á leiðinni heim aftur frá Íslandi og er í raun alltaf á leiðinni heim aftur, segir Arnór sem er alinn upp í Danmörku. „Ég var kominn inn í leiklistarskóla og búinn að borga staðfestingargjaldið og hætti við á síðustu stundu. Arnór segist vera meiri Dani en Íslendingur. Ég skammast mín pínu, ég held að John Grant tali betri íslensku en ég, segir Arnar og hlær.“

33 tónleikar á fimm vikum

„Í Rússlandi er alltaf ógeðslega gaman; upplifa eitthvað sem maður hefur ekki upplifað áður. Kaupmannahöfn eins og alltaf. Þýskaland er alltaf næs og svo förum við aftur til Barcelona og Madrídar, sem er spennandi vegna þess sem er í gangi þar núna. Búdapest er alltaf geggjuð líka,“ segir Arnór spurður hvaða staði hann hlakki mest til að heimsækja. „Það sem ég elska mest líka er eftir tónleikana að stökkva út og hitta fólkið. Ég fer alltaf í það eftir tónleika og þar næ ég í hellings orku,“ bætir Arnór við um það sem hann hlakkar mest til á ferðalaginu. Hljómsveitin er á samningi hjá þýsku plötufyrirtæki sem markaðssetur sveitina í Evrópu.

„Þýskaland er svo stór markaður og alltaf gengið vel að halda tónleika þar,“ segir Arnór en hljómsveitin mun koma fram í 21 landi á þessum fimm vikum, allt frá Rússlandi til Írlands.

„Vignir, bassaleikarinn okkar, er að verða pabbi núna á næstunni og kemur því ekki með okkur í ferðalagið. Því fengum við til liðs við okkur danskan bassaleikara sem heitir Nikolai sem spilar með hljómsveitinni Vola. Hann kom til landsins á mánudaginn og við erum búnir að vera að æfa saman. Við ætlum að halda smá prufutónleika á Bryggjunni Brugghúsi í kvöld og spila okkur saman. Það verður frítt inn og allir velkomnir,“ segir Arnór. Tónleikarnir hefjast um kl. 21.00 og eins og fyrr segir er frítt inn. Þetta er líka ágætt tækifæri til þess að kveðja sveitina áður en hún heldur í tónleikaferðina um Evrópu.