Heimsmeistaramótið í keilu verður haldið í Las Vegas dagana 24. nóvember til 4. desember. Á mótinu er keppt bæði í kvenna- og karlaflokki. Keppt er í einstaklingskeppni, tvímenningi, þrímenningi og fimm manna liðum á mótinu. Landsliðsþjálfarar kvenna- og karlaliðanna tilkynntu í gær hvaða leikmenn myndu leika fyrir Íslands hönd í Las Vegas. Í kvennalandsliðinu eru: Dagný Edda Þórisdóttir, KFR, Bergþóra Rós Ólafsdóttir, ÍR, Guðný Gunnarsdóttir, ÍR, Hafdís Pála Jónasdóttir, KFR, Katrín Fjóla Bragadóttir, KFR, og Linda Hrönn Magnúsdóttir, ÍR. Í karlalandsliðinu eru: Arnar Davíð Jónsson, KFR, Gunnar Þór Ásgeirsson, ÍR, Gústaf Smári Björnsson, KFR, Hafþór Harðarson, ÍR, Jón Ingi Ragnarsson, KFR, og Skúli Freyr Sigurðsson, KFR. hjorvaro@mbl.is