Kanadíski elektrópönkarinn Peaches er meðal þeirra listamanna sem bæst hafa í hóp flytjenda á listahátíð Sigur Rósar, Norður og niður, sem haldin verður í Hörpu milli jóla og nýárs. Auk hennar hafa bæst við bandaríski píanistinn og tónskáldið Dustin O'Halloran og landi hans Alex Somers, þýski raftónlistarmaðurinn Ulrich Schnauss, kanadíski kvikmyndaleikstjórinn Dean Deblois, íslenska hljómsveitin Amiina, tónlistarkonan Gyða Valtýsdóttir, rokksveitin Dimma og bandaríski hörpuleikarinn Mary Lattimore.
Enn á eftir að tilkynna fleiri listamenn sem koma fram á hátíðinni en frekari upplýsingar um þá sem staðfestir hafa verið má finna á vefsíðu hátíðarinnar, nordurognidur.is. Sala á dagpössum á hátíðina hefst eftir viku, fimmtudaginn 26. október.