Guðm. Sv. Hermannsson
gummi@mbl.is
Það hefur lengi þótt góð skemmtun að sækja framboðsfundi fyrir þingkosningar og fylgjast með frambjóðendum skylmast hver við annan og gesti í salnum. Með tímanum hefur form framboðsfundanna þó breyst töluvert, þeir eru nú flestir haldnir á vegum félaga, samtaka, stofnana eða fyrirtækja og fjalla því um afmörkuð málefni. Einn slíkur var haldinn í Hörpu í gær á vegum Samtaka ferðaþjónustunnar þar sem ferðaþjónustan vildi fá skýr svör frá frambjóðendum um skatta og gjöld, stjórnkerfi og framtíðaráform.
Áhuginn á að heyra svörin var greinilega mikill því hvert sæti var skipað í Kaldalóni. Og sum voru nokkuð skýr. Þannig er sama hvaða stjórnmálaflokkar verða í ríkisstjórn eftir þingkosningarnar 28. október: Forsvarsmenn ferðaþjónustunnar mega eiga von á hringingu frá nýjum ráðherra ferðamála þar sem þeim er boðið til skrafs og ráðagerða um skipulag og uppbyggingu atvinnugreinarinnar. Fulltrúar flokkanna voru einnig sammála um að skoða ætti skosku leiðina svonefndu í innanlandsflugi, að greiða niður flugfargjöld íbúa á jaðarsvæðum. Og allir lögðu þeir áherslu á að veita þurfi aukið fé til að byggja upp og viðhalda samgöngukerfinu og öðrum innviðum; sumir höfðu raunar tafist í umferðinni á leiðinni á fundinn í Hörpu. Þeir voru hins vegar ekki eins sammála um skatta og önnur gjöld í ferðaþjónustu og hvernig best væri að skipuleggja stjórnkerfið í kringum atvinnugreinina.
Sungið um vask
„Vask, vask, vask og aftur vask, það eina sem við hugsum um er bara va-a-askur,“ söng Skapti Örn Ólafsson, upplýsingafulltrúi SAF, en hann og Helga Árnadóttir, framkvæmdastjóri samtakanna, stýrðu fundinum. Skapti sagði að þetta lag hefði verið talið líklegt til vinsælda á þinginu í fyrra, að vísu hjá mjög þröngum hópi þingmanna og spurði síðan hvort frambjóðendurnir hygðust leggja fram eða styðja tillögur um hækkun virðisaukaskatts á ferðaþjónustuna á næsta kjörtímabili.„Ég ætla ekki að standa hér og segja: Ég lofa því að virðisaukaskattur á ferðaþjónustu fari aldrei í almennt þrep,“ sagði Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokks og ráðherra ferðamála. „Þessi ákvörðun hefur hins vegar ekki verið tekin og verður ekki nema það sé óhætt að taka hana. Ég er sammála því að það vanti frekari greiningar, ég er sammála því að ákveðnar forsendur hafi breyst,“ sagði Þórdís, en bætti síðar við, að það væri ekki stefna flokksins að troða inn hækkun á virðisaukaskatti á næsta kjörtímabili.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, sagði að markmiðið með skattbreytingunni á ferðaþjónustu hefði verið að einfalda skattkerfið og lækka efra þrepið í virðisaukaskattkerfinu á móti. „Það verður að skoða þetta í samhengi, og það skiptir líka máli að tala um lækkun tryggingagjalds, sem gagnast best litlum og meðalstórum fyrirtækjum sem eru helst í ferðaþjónustunni,“ sagði hún og bætti við að stærsta hagsmunamál ferðaþjónustunnar væri að koma á gengisstöðugleika og lækka vexti.
„Nú er ég bara venjulegur maður og í meðallagi vel gefinn. Ég skildi ekkert af því sem þær voru að segja,“ sagði Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins, og uppskar hlátur og klapp í salnum. „Það kemur ekki til greina af okkar hálfu (að hækka virðisaukaskatt á ferðaþjónustu). Við höfum sagt að það þarf að byggja upp ferðaþjónustu á jaðarsvæðum í þessu landi og við ætlum ekki að kippa fótunum undan þeim fyrirtækjum.“
Kerfið langar að hækka
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, sagði að sá flokkur ætlaði ekki að hækka virðisaukaskatt á ferðaþjónustu, sem væri að keppa við önnur lönd. „Ég hef grun um að þessi hugmynd eigi uppruna sinn í kerfinu. Vegna þess að í vissum hluta þess er ríkur vilji, löngun, til að hækka virðisaukaskatt á ferðaþjónustu. Stjórnmálamennirnir verða að passa upp á að kerfið taki ekki upp á að hækka virðisaukaskattinn vegna þess að það langar til þess og mun reyna aftur áður en langt um líður.“Óttarr Proppé, formaður Bjartrar framtíðar, sagði að tillögurnar um hækkun virðisaukaskattsins hefðu verið hluti af almennri efnahagsaðgerð og ferðaþjónustan væri orðin það stór grein að hún hefði gríðarleg áhrif á gengi krónunnar. „Ég treysti mér ekki til að útiloka breytingar, ég held að það sé mikilvægt að horfa á ferðaþjónustuna sem hluta af íslenska efnahagskerfinu. (...) Við þurfum að horfa til þess að búa til stöðugra efnahagsumhverfi en boðið hefur verið upp á,“ sagði Óttarr.
„Við styðjum þetta ekki,“ sagði Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs. „Af þeirri einföldu ástæðu að þetta er stærsta útflutningsgreinin og við miðum við það að aðrar útflutningsgreinar greiði virðisaukaskatt sem er sambærilegur og í helstu útflutningslöndunum. Ef við færum í þessa aðgerð yrði íslenska ferðaþjónustan með næsthæsta virðisaukaskattinn í Evrópu.“
Nýir tímar
„Nýtt fólk, nýir tímar,“ sagði Jóhanna Vigdís Guðmundsdóttir, frambjóðandi Samfylkingarinnar, og sagði að flokkurinn hefði ekki á stefnuskránni að hækka virðisaukaskatt á ferðaþjónustu á næsta kjörtímabili enda þurfi að fara varlega í skattlagningu á nýjar atvinnugreinar.Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, sagði meginmarkmið flokksins að útrýma hverskyns mismunun og það ætti einnig við um virðisaukaskattkerfið. Það væri stefna flokksins að hækka virðisaukaskatt á ferðaþjónustu en ekki á næsta kjörtímabili enda væri óstöðugleiki í gjaldmiðlinum og gríðarleg fjárfesting í greininni, sem þýddi lántökur og gríðarlega skuldasöfnun.
Helgi Hrafn Gunnarsson, frambjóðandi Pírata, sagði það ekki á stefnuskrá flokksins að hækka virðisaukaskatt á ferðaþjónustu. „Við þurfum að hugsa til lengri tíma núna, við þurfum ekki að mjólka meiri peninga út úr greininni þótt það sé stemningin í samfélaginu, því miður,“ sagði Helgi. Hann sagðist hins vegar ekki geta lofað því að framtíðin gerði þessar skattkerfisbreytingar ekki nauðsynlegar.
Hægt er að horfa á upptöku af fundinum á heimasíðu Samtaka ferðaþjónustunnar, saf.is.