[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Tónlistarkonan Natalie Gunnarsdóttir kíkti í Magasínið á K100 og sagði frá einu flottasta kosningapartíi landsins sem haldið verður í Valsheimilinu 28. október nk. Þeir sem fram koma á tónleikunum eru m.a.
Tónlistarkonan Natalie Gunnarsdóttir kíkti í Magasínið á K100 og sagði frá einu flottasta kosningapartíi landsins sem haldið verður í Valsheimilinu 28. október nk. Þeir sem fram koma á tónleikunum eru m.a. Reykjavíkurdætur, Emmsjé Gauti, Hildur, Páll Óskar, Aron Can, Úlfur Úlfur og Gus Gus. Aronmola verður kynnir kvöldsins. Aðeins eitt skilyrði er fyrir inngöngu og það er að kjósa. Fólk þarf að sanna það með því að smella af sér sjálfu við skilti Vökunnar sem verður á öllum kjörstöðum á höfuðborgarsvæðinu.