Húsið til hægri Tryggvagata 13.
Húsið til hægri Tryggvagata 13. — Morgunblaðið/RAX
Búið er að taka frá átta lúxusíbúðir í nýju fjölbýlishúsi á Tryggvagötu þremur dögum eftir að sala hófst á laugardaginn var. Söluverðið hleypur á hundruðum milljóna króna. Verð á auglýstum íbúðum er frá 43,5 til 143 milljónir króna.

Búið er að taka frá átta lúxusíbúðir í nýju fjölbýlishúsi á Tryggvagötu þremur dögum eftir að sala hófst á laugardaginn var. Söluverðið hleypur á hundruðum milljóna króna.

Verð á auglýstum íbúðum er frá 43,5 til 143 milljónir króna. Þrjár kosta 140 milljónir eða meira.

Samkvæmt fasteignavef mbl.is er meðalverð 20 íbúða í nýja húsinu um 75 milljónir og meðalstærðin um 95 fermetrar. Meðalverð á fermetra er því tæplega 790 þúsund krónur.

Hildigunnur Haraldsdóttir, arkitekt hjá arkitektastofunni Húsi og skipulagi, segir að við hönnun hússins sé lögð áhersla á sjálfbærni, m.a. með deilibílum. baldura@mbl.is 11