Margir muna eftir búð sem lengi var á Skólavörðustíg og hét BIRNA, en þar fengust flíkur sem Birna Karen Einarsdóttir eigandi hannaði sjálf.
Margir muna eftir búð sem lengi var á Skólavörðustíg og hét BIRNA, en þar fengust flíkur sem Birna Karen Einarsdóttir eigandi hannaði sjálf. Birna býr í Kaupmannahöfn þar sem hún rekur verslun sína BIRNA en hún skrapp til Íslands til að vera með pop-up markað á Eiðistorgi í fjóra daga, fór af stað á fimmtudag og verður nú um helgina laugardag kl 11-17 og sunnudag 11-16.