Hvítt föndurlím raksápa húðkrem (body lotion) borax vatn matarlitur Föndurlím sett í skál og dálítið af raksápu hrært saman við svo út komi „girnileg“ hræra. Um teskeið af húðkremi og dropa af matarlit hrært út í.
Hvítt föndurlím
Föndurlím sett í skál og dálítið af raksápu hrært saman við svo út komi „girnileg“ hræra. Um teskeið af húðkremi og dropa af matarlit hrært út í. Teskeið af boraxi blandað í desilítra af vatni og efnið látið leysast upp í smástund. Boraxlausnin sett út í smátt og smátt og hrært á milli þar til réttri áferð er náð. Ekki má setja of mikið af boraxi því þá verður slímið of hart. Þegar slímið er orðið þykkt og slímugt má leika með það. Best er að geyma það í lokuðu íláti þess á milli.
raksápa
húðkrem (body lotion)
borax
vatn
matarlitur