Lone Fischer
Lone Fischer
Heimakonur í þýska landsliðinu fögnuðu öruggum sigri í fyrsta leiknum á heimsmeistaramótinu í handbolta í gær. Þjóðverjar lögðu Kamerúna að velli með þrettán marka mun, 28:15, en þessi lið leika í D-riðli ásamt Hollandi, Serbíu, Suður-Kóreu og Kína.

Anna Loerper var markahæst Þjóðverja með fimm mörk og þær Lone Fischer og Friederike Gubernatis skoruðu fjögur mörk hvor. Vanessa Djiepmou skoraði mest fyrir Kamerún eða þrjú mörk.