Sóley og dúettinn Between Mountains munu troða upp á tónleikum KÍTÓN, félags kvenna í tónlist, á Kex hosteli í kvöld kl. 21.
Sóley og dúettinn Between Mountains munu troða upp á tónleikum KÍTÓN, félags kvenna í tónlist, á Kex hosteli í kvöld kl. 21. Sóley gaf í vor út sína þriðju sólóplötu, Endless Summer, og Between Mountains fór með sigur af hólmi í Músíktilraunum þessa árs en dúettinn skipa Katla Vigdís Vernharðsdóttir og Ásrós Helga Guðmundsdóttir.