Vetrarskrúði Bergheimar á Sólheimum í Grímsnesi í vetrarskrúða.

[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Aðventuhátíð Bergmáls verður haldin kl. 15 á morgun, sunnudaginn 3. desember, í Háteigskirkju. Sönghópurinn LUX og Sigga Eyrún ylja með ljúfum söng og séra Bjarni Karlsson flytur hugvekju.

Bergmál er líknar- og vinafélag krabbameinssjúkra og langveikra sem rekur hvíldarheimili, Bergheima, að Sólheimum.

Allir vinir og velunnarar sem vilja næðis njóta, hjartanlega velkomnir. Enginn aðgangseyrir. Veitingar í Safnaðarheimili að samkomu lokinni.