Forsvarsmenn flugfélagsins Ernis fengu góðar móttökur á Sauðárkróki þegar áætlunarflug þangað á vegum félagsins hófst í gær. Heimamenn í Skagafirði binda vonir við flugið með tilliti til ferðaþjónustu og að opnuð sé ný gátt inn á svæðið, eins og Sigríður Svavarsdóttir, forseti sveitarstjórnar, sagði í ávarpi á Alexandersflugvelli í gær. „Þetta er samgöngubót og í þessu felast tækifæri fyrir svæðið,“ sagði Sigríður.
Ferðir Ernis á Sauðárkrók verða fjórum sinnum í viku; á mánudögum, tvær ferðir á þriðjudögum og á föstudögum. Ernir flaug á Sauðárkrók um árabil og fram til 2010. Þráðurinn er tekinn upp aftur nú, meðal annars fyrir atbeina ríkisins, sem styrkir verkefnið. „Sauðárkróksflugið er tilraun til sex mánaða, við endurmetum stöðuna með vorinu. Ég er bjartsýnn á að þetta gangi upp til lengri tíma,“ segir Ásgeir Þorsteinsson, markaðsstjóri Ernis. sbs@mbl.is