[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Guðmundur Kjartansson stóð sig best þeirra ellefu íslensku skákmanna sem tóku þátt í opna mótinu í Rúnavík í Færeyjum sem lauk um síðustu helgi. Mótið var hluti af skákhátíð sem hófst með landskeppni Færeyinga og Íslendinga.

Guðmundur Kjartansson stóð sig best þeirra ellefu íslensku skákmanna sem tóku þátt í opna mótinu í Rúnavík í Færeyjum sem lauk um síðustu helgi. Mótið var hluti af skákhátíð sem hófst með landskeppni Færeyinga og Íslendinga. Guðmundur, sem vann mótið í fyrra, átti góða möguleika á því að endurtaka afrek sitt eftir sigra á stórmeisturunum Vadim Malakhatko og Vladimir Hamitevici í fimmtu og sjöttu umferð en slæmur kafli kostaði sitt, töp í sjöundu og áttundu umferð og að lokum hlaut hann sex vinninga og varð í 7.-10. sæti af 59 keppendum. Sigurvegari varð Hvítrússinn Nikita Maiorov með 7½ vinning en á eftir komu fimm skákmenn með 6½ vinning.

Af öðrum þátttakendum okkar stóð hinn 14 ára gamli Vignir Vatnar Stefánsson sig vel, hlaut 5½ vinning og varð í 11.-19. sæti. Á hæla hans kom Einar Hjalti Jensson með 5 vinninga í 20.-25. sæti. Jón Kristinn Þorgeirsson, Gauti Páll Jónsson, Símon Þórhallsson, Áskell Örn Kárason og Haraldur Haraldsson hlutu allir 4½ vinning og enduðu í 26.-34. sæti.

Vignir Vatnar Stefánsson mætti rússneska stórmeistaranum Mikhai Ulibyn í áttundu umferð og er óhætt að segja að fáar viðureignir vöktu meiri athygli í Rúnavík. Vignir tefldi sannfærandi og vann í aðeins 32 leikjum og var þetta fyrsti sigur hans yfir stórmeistara í kappskák. Hannes Hlífar Stefánsson var einnig 14 ára gamall er hann vann Jón L. Árnason á Íslandsmótinu í Grundarfirði haustið 1986 og var nokkrum mánuðum yngri en Vignir. Í svipinn man greinarhöfundur ekki eftir því að yngri skákmenn hafi náð þessum áfanga:

Rúnavík 2017; 8. umferð:

Vignir Vatnar Stefánsson – Mikhail Ulibyn

Hollensk vörn

1. d4 e6 2. c4 f5 3. g3 Rf6 4. Bg2 d5 5. Rh3

Það er engin skylda að fara með þennan riddara til f3! Staðsetning hans á h3 býður upp á ýmsa möguleika.

5.... c6 6. Rd2 Bd6 7. 0-0 0-0 8. Rf3 Re4 9. Rf4 De7 10. c5!?

Vignir hafði fengið svipaða stöðu á HM ungmenna í Porto Carras í Grikklandi fyrir tveim árum og þessi framrás c-peðsins reyndist honum erfið. Hann hyggst nýta sér fengna reynslu.

10.... Bc7 11. Rd3 b6 12. b4 Ba6 13. Rfe5?!

Gengur beint til verks en meiri aðgæslu var þörf. 13. a4 var nákvæmara.

13.... Hc8?

Missir af tækifæri til hagfelldra uppskipta, 13.... bxc5 14. Bxc5 Bxe5! Og nú er 15. Rxe5 svarað með 15. ... Rc3 og e2-peðið fellur. Eftir 15. Dxe5 Rd7 stendur c5-peðið tæpt og svarta staðan er síst lakari.

14. Dc2 Rd7 15. Bf4 Rxe5 16. Rxe5 Bxe5 17. Bxe5 Bc4 18. Hfe1!

Undirbýr framrás e4-peðsins sem gæti hafist með f2-f3 o.s.frv.

18. ... Rg5 19. Bf4 Rf7 20. e4!

Staðsetning biskupsins á c4 gerir þessa framrás mögulega. Svarta staðan er afar erfið þar sem opnun e-línunnar blasir við.

20.... Df6 21. exf5 exf5 22. Be5 Rxe5 23. Hxe5 f4 24. Hae1 Hf8 25. He6 Dg5?

Skárra var 25.... Df7, þar sem drottningin hrekst nú á enn verri reit.

26. H1e5! Dd8

Vitaskuld ekki 26.... Dgh4 27. f3 og drottningin fellur.

27. Hh5!

Beinir skeytum sínum að kóngsvængnum. Svartur er varnarlaus.

27.... Hf6

27.... h6 er svarað með 28. Hexh6! og 27.... g6 strandar á 28. Hxg6+! o. s.frv.

28. Dxh7+ Kf8 29. Hxf6+ gxf6 30. Dh8+ Kf7 31. Hh7+ Kg6 32. Dg7+

– og svartur gafst upp.

Helgi Ólafsson (helol@simnet.is)