Lífsgæði. N-NS
Norður | |
♠KD975 | |
♥K98 | |
♦Á862 | |
♣4 |
Vestur | Austur |
♠Á83 | ♠G42 |
♥75 | ♥D43 |
♦K4 | ♦753 |
♣ÁD10973 | ♣K652 |
Suður | |
♠106 | |
♥ÁG1062 | |
♦DG109 | |
♣G8 |
Suður spilar 4♥.
Byrjun sagna er sjálfgefin, hvort sem kerfið er Standard eða Precision: Norður opnar á 1♠ og suður svarar á kröfugrandi. Þannig fóru sagnir af stað á báðum borðum í úrslitaleik öldungakeppninnar í San Diego. Vestur kom inn á 2♣ og nú átti norður leikinn með sína lágmarksopnun. Eru spilin nógu góð fyrir dobl?
Ekki fannst Nick Nickell það. Hann sagði pass. Sögnin gekk til Ralph Katz í suður, sem doblaði til úttektar og Nickell sagði 2♦. Austur barðist í 3♣ og Nickell í 3♦, þar sem sagnir dóu drottni sínum: tíu slagir og 130 í NS.
Hinum megin doblaði Mike Passell 2♣ í stöðu norðurs. Hann hugsaði með sér að punktar væru ekki einu verðmætin í lífinu. Ekki mætti gleyma góðum mat og fögrum konum – „og skiptingunni, auðvitað.“ Marc Jacobus í suður stökk í 4♥ og tók þar tíu slagi án þess að svitna mikið: 620 í NS.