Birgir Leifur Hafþórsson
Birgir Leifur Hafþórsson
Birgir Leifur Hafþórsson er í 85. sæti af 240 keppendum á Joburg Open golfmótinu sem hófst á Randpark vellinum í Jóhannesarborg í Suður-Afríku í gær. Birgir lék fyrsta hringinn á 71 höggi, einu höggi undir pari vallarins.

Birgir Leifur Hafþórsson er í 85. sæti af 240 keppendum á Joburg Open golfmótinu sem hófst á Randpark vellinum í Jóhannesarborg í Suður-Afríku í gær. Birgir lék fyrsta hringinn á 71 höggi, einu höggi undir pari vallarins. Mótið er hluti af Evrópumótaröðinni tímabilið 2017-2018. Keenan Davidse frá Suður-Afríku er efstur eftir fyrsta hringinn á 63 höggum, átta undir pari. vs@mbl.is