Oddný G. Harðardóttir
Oddný G. Harðardóttir
Kosið var í stjórn þingflokks Samfylkingarinnar nú í vikunni. Formaður var kjörin Oddný G. Harðardóttir, varaformaður Guðmundur Andri Thorsson og ritari Albertína Friðbjörg Elíasdóttir. Oddný G.

Kosið var í stjórn þingflokks Samfylkingarinnar nú í vikunni.

Formaður var kjörin Oddný G. Harðardóttir, varaformaður Guðmundur Andri Thorsson og ritari Albertína Friðbjörg Elíasdóttir.

Oddný G. Harðardóttir hefur verið þingmaður Samfylkingarinnar síðan 2009 og gegnt þingflokksformennsku 2011–2012, 2012–2013 og síðan 2016.

Oddný var formaður Samfylkingarinnar og var hún fyrsta konan á Íslandi til að verða fjármálaráðherra og fyrsta konan í hlutverki formanns fjárlaganefndar.

Guðmundur Andri Thorsson og Albertína Friðbjörg Elíasdóttir taka sæti á þingi í fyrsta skipti og taka þau við af Guðjóni S. Brjánssyni og Loga Einarssyni í stjórn þingflokksins. Frá þessu segir í tilkynningu frá þingflokki Samfylkingarinnar.