Aldin BioDome Hugmynd að útliti gróðurhvelfinga við Stekkjarbakka.
Aldin BioDome Hugmynd að útliti gróðurhvelfinga við Stekkjarbakka. — Tölvuteikning úr greinargerð Spors í sandi ehf.
Borgarráð hefur samþykkt að veita fyrirtækinu Spor í sandinn ehf. vilyrði fyrir lóð fyrir byggingu gróðurhvelfinga, Aldin BioDome, við Stekkjarbakka í Breiðholti. Lóðin liggur að Elliðaárdal og er á þróunarsvæði samkvæmt aðalskipulagi. Lóðin er um 12.

Borgarráð hefur samþykkt að veita fyrirtækinu Spor í sandinn ehf. vilyrði fyrir lóð fyrir byggingu gróðurhvelfinga, Aldin BioDome, við Stekkjarbakka í Breiðholti. Lóðin liggur að Elliðaárdal og er á þróunarsvæði samkvæmt aðalskipulagi.

Lóðin er um 12.500 fermetrar að stærð og þar má reisa byggingar allt að 3.800 fermetra að grunnfleti. Fyrir rúmu ári veitti borgarráð fyrirtækinu vilyrði fyrir talsvert minni lóð á þessu svæði og fellur það loforð nú niður.

Embættismenn borgarinnar upplýstu borgarráð í gær um að hugmyndin hefði þróast í skipulagsvinnu síðasta árs og viðskiptamódelið kallaði á stærri lóð. Jafnframt hafi verið fengnir að verkefninu innlendir og erlendir fagaðilar.

Nýting á jarðvarma

Aldin BioDome á að verða nýr samkomustaður fyrir íbúa borgarinnar og ferðamenn. Með nýtingu jarðvarma og gróðurlýsingu verður veittur aðgangur að gróðursælu umhverfi í því sem aðstandendur verkefnisins segja að geti orðið einskonar lífhvolf.

Byggð verða þrjár háar hvelfingar og önnur mannvirki, talsvert niðurgrafin, og þar verður margháttuð starfsemi. Nefnd er sala á vörum beint frá býli, úrvals veitingastaðir og verslun. Í trópískri hvelfingu verður boðið upp á fræðslu og hvíldarsvæði og í ræktunarhvelfingu verður hægt að taka þátt í ræktun og tilraunum í matjurtarækt. Inn í starfsemina verður fléttað aðstöðu fyrir jóga og hugleiðslu en einnig verður hægt að halda viðburði hverskonar og veislur.

helgi@mbl.is