Bullhúsið Bíldudal Brödrene Bull reistu það fyrst 1894 við hvalveiðistöð sína á Stekkeyri í Jökulfjörðum.
Bullhúsið Bíldudal Brödrene Bull reistu það fyrst 1894 við hvalveiðistöð sína á Stekkeyri í Jökulfjörðum. — Ljósmyndir/Bolli Valgarðsson
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Íslenska kalkþörungafélagið á Bíldudal hefur tekið niður og gefið Áhugamannafélaginu Gyðu það sem eftir var af Bullhúsinu svokallaða, gömlu pakkhúsi sem stóð á athafnalóð félagsins.

Sigtryggur Sigtryggsson

sisi@mbl.is

Íslenska kalkþörungafélagið á Bíldudal hefur tekið niður og gefið Áhugamannafélaginu Gyðu það sem eftir var af Bullhúsinu svokallaða, gömlu pakkhúsi sem stóð á athafnalóð félagsins. Með gjöfinni fylgdu mjög nákvæmar teikningar og ljósmyndir sem fyrirtækið lét útbúa áður en húsið var tekið niður.

Gyða er áhugamannafélag um varðveislu menningarminja á Bíldudal og hefur félagið í hyggju að láta endursmíða Bullhúsið og reisa á ný á Bíldudal fáist til þess nægilegt fjármagn, að því er fram kemur í frétt frá Íslenska kalkþörungafélaginu. Bullhúsið var elsta atvinnuhúsnæði Bíldudals, hluti menningarsögu bæjarins og friðað samkvæmt lögum. Það var tekið niður í samræmi við leiðbeiningar og kröfur Minjastofnunar Íslands.

Var reist á Stekkeyri 1894

Bullhúsið var upphaflega flutt til Bíldudals frá Noregi af Brödrene Bull sem reistu það 1894 við hvalveiðistöð sína á Stekkeyri í Jökulfjörðum. Um aldamótin 1900 keypti athafnamaðurinn Pétur Torsteinsson húsið og reisti á Bíldudal. Þar var það notað sem aðgerðar- og pakkhús, en einnig sem leikhús og til dansleikjahalds eftir því sem fram kemur í gögnum Minjastofnunar. Þar var einnig saltfiskur þveginn innandyra í fyrsta sinn hér á landi vegna þeirrar framsýni að leiða vatn inn í húsið sem gerði þvottinn þar mögulegan.

Áður en húsið var tekið niður skoðuðu sérfræðingar á vegum Minjastofnunar húsleifarnar ítarlega og sú skoðun leiddi í ljós að timburverk þess er nær ófúið þótt ýmsar stoðir vanti og ýmsar séu brotnar. Burðarbitarnir voru t.d. víða lásaðir saman að frönskum sið. Skoðun sérfræðinga á vegum Minjastofnunar var engu að síður sú að húsnæðið væri í heild mjög bágborið auk þess sem slysahætta stafaði af því, að sögn Einars Ísakssonar, minjavarðar Vestfjarða hjá Minjastofnun. Því hafi ekki verið um annað að ræða en að heimila niðurtöku þess að lokinni mjög nákvæmri uppmælingu á því og gerð samsvarandi teikninga.

Einar Sveinn Ólafsson, nýfjárfestingastjóri Marigot, eiganda Kalkþörungafélagsins, hér á landi, segir að fyrirtækið hafi lagt í tæplega þriggja milljóna króna kostnað til að láta mæla húsið mjög nákvæmlega upp, alveg upp á millimetra til að hægt væri að gera teikningar af húsinu og endurreisa á ný. Gaman væri fyrir Bíldudal að húsið yrði endurreist af Gyðu og því fundið nýtt hlutverk í þorpinu.

Einar Sveinn segir að þar sem gamla pakkhúsið stóð verði reist ný 1.400 fermetra bygging samföst núverandi verksmiðjuhúsnæði þar sem lager Kalkþörungafélagsins verði geymdur. Að lokinni þeirri framkvæmd verði allur afurðalager fyrirtækisins kominn undir þak sem verði til mikilla bóta.

Fyrirtækið hefur gengið frá samkomulagi við hafnarstjórn og bæjarstjóra Vesturbyggðar um þessar framkvæmdir.