Flatey Þór dældi 30 tonnum af vatni.
Flatey Þór dældi 30 tonnum af vatni.
Áhöfn varðskipsins Þórs dældi þrjátíu tonnum af ferskvatni yfir í tanka í Flatey á laugardag, en heimamenn höfðu haft samband við Landhelgisgæsluna vegna yfirvofandi vatnsskorts í eynni.

Áhöfn varðskipsins Þórs dældi þrjátíu tonnum af ferskvatni yfir í tanka í Flatey á laugardag, en heimamenn höfðu haft samband við Landhelgisgæsluna vegna yfirvofandi vatnsskorts í eynni. Dælingin gekk prýðilega, en hún tók fimm klukkustundir og 35 mínútur. Að henni lokinni voru allir tankar í eynni orðnir fleytifullir, samkvæmt upplýsingum frá Landhelgisgæslunni.

Um það leyti sem Þór var að athafna sig við Flatey barst ábending um að maður í eynni hefði slasast og þyrfti á aðhlynningu að halda. Sjúkraflutningamenn úr áhöfn skipsins fóru í land á léttbát til að athuga líðan mannsins. Skoðun þeirra leiddi í ljós að hann væri líklega rifbeinsbrotinn.

Svo heppilega vildi til að þyrlan TF-SYN var í gæsluflugi í grenndinni og var því ákveðið að hún sækti þann slasaða og kæmi honum undir læknishendur í Stykkishólmi.