Aron Pálmarsson
Aron Pálmarsson
Geir Sveinsson, þjálfari karlalandsliðs Íslands í handbolta, segir ekki ljóst hvort Aron Pálmarsson verður klár í slaginn á Evrópumótinu í Króatíu.

Geir Sveinsson, þjálfari karlalandsliðs Íslands í handbolta, segir ekki ljóst hvort Aron Pálmarsson verður klár í slaginn á Evrópumótinu í Króatíu. Fyrsti leikur Íslands á mótinu er gegn Svíþjóð á föstudaginn en Aron gat ekki tekið þátt í síðasta leik fyrir mótið, vináttulandsleik gegn Þýskalandi í gær, vegna bakmeiðsla.

Aron missti af HM í Frakklandi fyrir ári vegna meiðsla, en þá glímdi hann við erfið meiðsli í mjöðm og nára.