Ópersónulegar sagnir eiga stundum í vök að verjast og svo fór um síðustu áramót: „... gamlársdagur ber upp á sunnudag að þessu sinni.“ Rétt er að þessir dagar runnu saman en rétt mál er hins vegar: gamlárs dag ber upp á sunnudag.
Ópersónulegar sagnir eiga stundum í vök að verjast og svo fór um síðustu áramót: „... gamlársdagur ber upp á sunnudag að þessu sinni.“ Rétt er að þessir dagar runnu saman en rétt mál er hins vegar: gamlárs dag ber upp á sunnudag. Eins og eitt sinn var sagt: „Í ár ber aðfanga dag upp á 24. desember.“