Nýlistasafnið fagnar fjörutíu ára starfsafmæli í ár.
Nýlistasafnið fagnar fjörutíu ára starfsafmæli í ár. Hátíðarhöld félagsmanna hófust með fjölsóttum afmælisfagnaði á föstudagskvöldið var, í nýjum og rúmgóðum sýningarsölum Nýló í Marshall-húsinu á Granda þar sem meðal annars komu fram hljómsveitir skipaðar myndlistarmönum. Afmæli Nýlistasafnsins, sem hefur verið leiðandi í mynlistarlífi landsins undanfarna áratugi, er síðan fagnað með röð allrahanda sýninga á árinu sem er að hefjast.